GreenRoses
25.02.2008 18:39:03 / green_roses

Skautar :)

Hvernig væri að fara að plana eitthvað og láta það virkilega gerast, hmmm :p Ég var að spá hvort þið væruð til í að hafa skautaferð? :).
 
Næstu helgi kemur Eydís og þa´ættlum við út að borða á Duus og djamm, öllum er boðið með :D. Endilega látið mig bara vita sem fyrst hverjir ættla að koma eða skrifið það í comment svo ég geti pantað borð, makar eru velkomnir með ;).

En svo var ég að spá, kanski helgina eftir næstu að hafa skautaferð, hverjum líst á það?? Hverjar komast, endilega skrifið í comment.....

og stelpur, pliz verið duglegar að skrifa hérna inná eða skrifiði blogg sjálfar, ef þið vitið ekki leyniorðið ykkar þá bara spurjið mig um það.....

Mér finnst ekki allar taka jafn mikin þa´tt einsog aðrar,,,svo endilega látið í ykkur heyra og höldum fats í þennan Njarðvíkur hóp, leiðinlegt að missa hann...

Bryndís ósk ;)

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 10:23:59 / green_roses

jæja stelpur

Jæja stelpur þetta gengur nú ekki lengur er það?? Við erum ekkert að hittast og engin að blogga neitt. Eigum við ekki að fara að breyta þessu og plana eitt stykki hitting bráðlega? ;) Hvernig lýst ykkur á það??

Getur einhver haft hitting? Viljiði hafa þema? Og hvenar eruði til í hitting? Endilega skrifiði í comment ;)

 Bryndís Ósk :D 


» 5 hafa sagt sína skoðun

30.11.2007 17:03:56 / eydis

Litlu jól :)

Jæja eru þá allir til í smá litlu jól? :)

Eigum við ekki allar að koma með pakka og skiptast á gjöfum, borða smákökur og annað fínerí, hlusta á jólalög og spjalla saman. Hljómar það ekki vel?

Það er bara spurning hvort við eigum ekki að hafa eitthvað hámark í því hvað gjöfin má kosta. Hugmyndir?

Hlakka mjög mikið til að sjá ykkur allar :) 

 kv. Eydís

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.11.2007 11:29:52 / green_roses

Jóla Hittingur

Sælar stúlkur mínar 

Það er bara ekkert að gerast hérna hjá okkur :p. Hún Fríða sæta kom með frábæra hugmynd í skólanum í dag, hvort við ættum ekki að hittast allar saman á milli jól og nýárs??  

Eru einhverjar til í það?? Er hægt að hittast heima hjá einhverjum?? Komiði með uppástungur um hvað þið viljið gera J 

Kv. Bryndís Ósk

   


» 10 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 11:43:26 / eydis

Hvar viljiði borða?

Hvort vilji þið fara út að borða á Langbest eða Duus??

Það má líka alveg koma með aðrar hugmyndir :)

 Ætlum semsagt að fara út að borða á föstudaginn, mæting um sex á þann stað sem við veljum og fara svo saman á leikinn um klukkan 7 :)

Sáttar við þetta?

Hlakka mjög mikið til þess að sjá ykkur :)

kv. Eydís


» 7 hafa sagt sína skoðun

10.10.2007 12:37:22 / green_roses

keila?

Hæhæ ;) 

Ég var að spá að þegar að Eydís kemur sem sagt 25. okt, ættum við þá allar að fara út að borða í Rvk og svo í keilu?? Hvað finst ykkur um það? Endilega commentið og segjið hverjar eru til og hverjar ekki. Og endilega komið með hugmyndir sme við gætum gert :D. 

Kv. Bryndís

 

» 16 hafa sagt sína skoðun

27.09.2007 13:25:32 / eydis

Annar hittingur?

Sælar krúttrassgöt :Þ

 

Þar sem ég komst ekki á síðasta hitting ákvað ég að skrif hér inn smá færslu og biðja ykkur um að segja mér hvað þið eruð að bardúsast í dag. Það er svo langt síðan ég hef hitt ykkur allar.

Sjálf er ég í Háskólanum á Akureyri að læra leikskólakennarafræði (ég veit, fræðilegt orð;) og er nýlega búin að kaupa mér íbúð með unnusta mínum honum Pétri. Ég ætla mér að klára þetta nám og byrja svo að hrúga niður börnum, hehe. Hvað um ykkur hvað eru þið að gera?

 

Ég kem öruglega suður 25. október og verð fram á sunnudag. Ég væri alveg til í að hitta ykkur allar ef ykkur langar að hafa annan hitting J

 

Endilega kvittið í kommentin ef ykkur langar að hafa annan hitting, bara til að hitta mig :Þ heheh


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.09.2007 10:31:42 / green_roses

Hittingur á laug ;D

Hæ,hæ :D 

Jæja stelpur þá erum við loksins komnar með síðu J. Þar sem að við erum allar að fara í sitthvora áttina að þá væri gaman ef við gætum bloggað um eitthvað skemmtilegt sem við erum að gera :D. Svo væri gaman ef við gætum hisst einhvern tíman yfir kaffi hehe ;), eða djammað saman ;) 

Jæja, fyrsti hittingurinn er á laugardaginn J. Mæting á Duus kl 7, fáum okkur að borða og byrjum að drekka ;). Svo förum við heim til Sunnu og djömmum þar ;D. 

 Hlakka til að sjá ykkur ;)

 Kv. Bryndís

  


» 4 hafa sagt sína skoðun


Klukkan
RSS tengill