GreenRoses
10.10.2007 12:37:22 / green_roses

keila?

Hæhæ ;) 

Ég var að spá að þegar að Eydís kemur sem sagt 25. okt, ættum við þá allar að fara út að borða í Rvk og svo í keilu?? Hvað finst ykkur um það? Endilega commentið og segjið hverjar eru til og hverjar ekki. Og endilega komið með hugmyndir sme við gætum gert :D. 

Kv. Bryndís

 
Svava skrifaði
Ég fer út 26. svo ég væri þá bara laus þennan fimmtudag. Nema ég fari á Para & vina, hehehe.. Það er 25.okt.
Sunna skrifaði
Mig langar í hitting en finnst samt ekkert voðalega gaman í keilu :P en er samt til :)
Eydís skrifaði
Ég er til í allt :) Sunna finnst þér ekki gaman í keilu? Við tvær erum keilu snillingar!
Anna skrifaði
Ég er að vinna til 23:30 :( langar samt að hittast :)
Bryndís skrifaði
Hvaða dag viljiði hittast og hvað viljiði gera??
Sunna skrifaði
Mér sýnist það bara vera við, gamla gengið sem viljum hittast þannig að við getum bara gert hvað sem er... Erum þá ekkert svo margar.
Eydís skrifaði
Já vorum að hugsa um að fara út að borða á föstudaginn og skella okkur svo saman á leikinn :) Ég, þú, Bryndís og Halla og Anna ef þær vilja. Svo mega fleiri koma með ef þær viljja :) Hlakka geggjað mikið til að hitta ykkur elskurnar :*
Bryndís skrifaði
Já held að við höldum bara áfram að hittast, ekki mikill áhugi hjá hinum stelpunum. EN ég er alveg til í að fara út að borða og svo á leikinn :)
Ebba Lára skrifaði
sælar stelpur... ég er allveg til í að vera með í þessu góð hugmynd þarna á ferð
Eydís skrifaði
Ebba þú mátt endilega vera með :)
Anna Andrésd skrifaði
Mér líst geðveikt vel á þetta plan, er að vinna til fjögur á föstudaginn og get komið eftir það :) svo fer ég til DK á laugardagsmorgunn :)
Eydís skrifaði
Jey þetta verður gaman :) Verðum bara að plana hvert við ætlum að borða og klukkan hvað :)
Bryndís Ósk skrifaði
Sigga vill líka koma með :D. Er leikurinn korter yfir 7?
Sigga Sess skrifaði
Ég vil koma með...:D
Eydís skrifaði
Já hann er korter yfir sjö! Spurning um að fara bara út að borða í kringum sex? Hvert vilji þið fara?
Sunna skrifaði
Við þurfum samt að mæta eitthvað fyrir leik Bryndís þannig að það er kannski soldið tæpt að fara klukkan 6...

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Klukkan
RSS tengill