27.09.2007 13:25:32 / eydis
Annar hittingur?
Sælar krúttrassgöt :Þ
Þar sem ég komst ekki á síðasta hitting ákvað ég að skrif hér inn smá færslu og biðja ykkur um að segja mér hvað þið eruð að bardúsast í dag. Það er svo langt síðan ég hef hitt ykkur allar.
Sjálf er ég í Háskólanum á Akureyri að læra leikskólakennarafræði (ég veit, fræðilegt orð
og er nýlega búin að kaupa mér íbúð með unnusta mínum honum Pétri. Ég ætla mér að klára þetta nám og byrja svo að hrúga niður börnum, hehe. Hvað um ykkur hvað eru þið að gera?
Ég kem öruglega suður 25. október og verð fram á sunnudag. Ég væri alveg til í að hitta ykkur allar ef ykkur langar að hafa annan hitting J
Endilega kvittið í kommentin ef ykkur langar að hafa annan hitting, bara til að hitta mig :Þ heheh